Samantekt um þingmál

Ráðstafanir í ríkisfjármálum

1. mál á 142. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að afnema fyrirhugaða hækkun virðisaukaskatts á gistiþjónustu.

Helstu breytingar og nýjungar

Hækkun á virðisaukaskatti á gistiþjónustu, sem ráðgerð var 1. september 2013, úr 7% í 14%, kemur ekki til framkvæmda.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum nr. 50/1988 um virðisaukaskatt en þeim hafði verið breytt með lögum nr. 146/2012 um ráðstafanir í ríkisfjármálum.

Kostnaður og tekjur

Gert er ráð fyrir 535 milljóna króna tekjutapi fyrir ríkissjóð á þessu ári.

Umsagnir (helstu atriði)

Engar efnislegar athugasemdir bárust en skiptar skoðanir voru á því hvort hætta ætti við fyrirhugaða hækkun.

Afgreiðsla

Samþykkt óbreytt.

Aðrar upplýsingar

Ferðamálastofa.


Síðast breytt 26.06.2013. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.